Nokia 6085 - Öryggisatriði

background image

Öryggisatriði

Lesið þessar einföldu leiðbeiningar. Sé þeim ekki fylgt getur það verið hættulegt
eða varðað við lög. Lesa skal alla notendahandbókina til að fá nánari upplýsingar.

ÖRYGGI ÞEGAR KVEIKT ER Á TÆKINU

Ekki kveikja á símanum þar sem notkun þráðlausra síma er bönnuð
eða þar sem hún kann að valda truflunum eða hættu.

UMFERÐARÖRYGGI GENGUR FYRIR

Fara skal að öllum staðbundnum lögum. Ætíð skal hafa hendur
frjálsar til að stýra ökutækinu við akstur. Umferðaröryggi skal ganga
fyrir í akstri.

TRUFLUN

Allir þráðlausir símar geta verið næmir fyrir truflunum, sem getur
haft áhrif á virkni þeirra.

SLÖKKT SKAL Á SÍMANUM Á SJÚKRASTOFNUNUM

Virða skal allar takmarkanir. Slökkva skal á símanum nálægt
lækningabúnaði.

HAFA SKAL SLÖKKT Á SÍMANUM Í FLUGVÉLUM

Virða skal allar takmarkanir. Þráðlaus tæki geta valdið truflunum í
flugvélum.

SLÖKKT SKAL Á SÍMANUM ÁÐUR EN ELDSNEYTI ER TEKIÐ

Ekki nota símann nærri eldsneytisdælu. Notist ekki í námunda við
eldsneyti eða sterk efni.

SLÖKKVA SKAL Á SÍMANUM ÞAR SEM VERIÐ ER AÐ SPRENGJA

Virða skal allar takmarkanir. Ekki nota símann þar sem verið er að
sprengja.

NOTIST AF SKYNSEMI

Notist aðeins í hefðbundinni stöðu eins og lýst er í leiðbeiningum
með vörunni. Forðast skal óþarfa snertingu við loftnetið.

VIÐURKENND ÞJÓNUSTA

Aðeins viðurkennt starfsfólk má setja upp eða gera við þessa vöru.

AUKAHLUTIR OG RAFHLÖÐUR

Aðeins má nota samþykkta aukahluti og rafhlöður. Ekki má tengja
saman ósamhæf tæki.

VATNSHELDNI

Símtækið er ekki vatnshelt. Halda skal því þurru.

background image

Ö r y g g i s a t r i ð i

7

ÖRYGGISAFRIT

Muna skal að taka öryggisafrit eða halda skrá yfir allar mikilvægar
upplýsingar sem geymdar eru í símanum.

TENGING VIÐ ÖNNUR TÆKI

Þegar tækið er tengt öðru tæki skal lesa notendahandbók með því
vandlega, einkum upplýsingar um öryggi. Ekki má tengja saman
ósamhæf tæki.

NEYÐARSÍMTÖL

Tryggja skal að kveikt sé á símanum og hann sé virkur. Styðja skal á
hætta-takkann eins oft og þarf til að hreinsa skjáinn og hverfa aftur
að upphafsskjánum. Sláðu inn neyðarnúmerið og ýttu á
hringitakkann. Gefa skal upp staðarákvörðun. Ekki má slíta símtali
fyrr en að fengnu leyfi til þess.

Um tækið

Þráðlausa tækið sem lýst er í handbókinni er samþykkt til notkunar á EGSM 850,
900, 1800 og 1900 símkerfum. Þjónustuveitan gefur nánari upplýsingar um
símkerfi.

Hlíta skal öllum lögum og virða einkalíf og lögbundin réttindi annarra, þar á
meðal höfundarrétt, við alla notkun þessa tækis.

Þegar myndir eða myndinnskot eru tekin eða notuð skal fylgja öllum lögum og
virða staðbundna siði auk einkalífs og lögbundinna réttinda annarra.

Viðvörun: Við notkun allra aðgerða í þessu tæki, annarra en vekjara,
þarf að vera kveikt á tækinu. Ekki skal kveikja á tækinu þegar notkun
þráðlausra tækja getur valdið truflun eða hættu.

Sérþjónusta

Ef nota á símann verður áskrift að þjónustuveitu fyrir þráðlausa síma að vera fyrir
hendi. Margar aðgerðir í þessu tæki eru háðar því að aðgerðir í þráðlausa
símkerfinu virki. Þessi sérþjónusta er hugsanlega ekki fyrir hendi í öllum
símkerfum eða þörf getur verið á sérstökum ráðstöfunum hjá þjónustuveitunni
áður en hægt er að nota sérþjónustu. Þjónustuveitan getur þurft að gefa
viðbótarfyrirmæli um notkun og útskýra hvaða gjöld eiga við. Sum símkerfi geta
verið með takmörkunum sem hafa áhrif á hvernig hægt er að nota sérþjónustu.
Sum símkerfi styðja t.d. ekki alla séríslenska bókstafi og þjónustu.

Þjónustuveitan kann að hafa beðið um að tilteknar aðgerðir væru hafðar óvirkar
eða ekki gerðar virkar í tækinu. Ef svo er birtast þær ekki í valmynd tækisins.

background image

Ö r y g g i s a t r i ð i

8

Tækinu kann einnig að hafa verið sérstaklega samskipað. Þessi samskipan kann
að fela í sér breytingar á valmyndarheitum, röð valmynda og táknum.
Þjónustuveitan gefur nánari upplýsingar.

Þetta tæki styður WAP 2.0 samskiptareglur (HTTP og SSL) sem keyra á TCP/IP
samskiptareglum. Fyrir sumar aðgerðir í símanum, eins og MMS
(margmiðlunarboðaþjónustu), vefskoðun, tölvupóst, spjallskilaboð, fjartengda
samstillingu og niðurhal efnis með vafra eða MMS, þarf símkerfisstuðning við
viðkomandi tækni.

Samnýtt minni

Eftirfarandi aðgerðir í þessu tæki geta samnýtt minni: gallerí, tengiliðir,
textaskilaboð, margmiðlunarskilaboð, spjallskilaboð, tölvupóstur, dagbók,
verkefni og Java

TM

leikir og forrit. Notkun einnar eða fleiri þessara aðgerða getur

minnkað tiltækt minni fyrir aðrar aðgerðir sem samnýta minni. Til dæmis getur
vistun margra Java forrita notað allt tiltækt minni. Tækið getur birt boð um að
minnið sé fullt þegar reynt er að nota aðgerð sem notar samnýtt minni. Þá skal
eyða einhverjum upplýsingum eða færslum sem eru geymdar í aðgerðunum sem
samnýta minni áður en haldið er áfram. Sumar aðgerðir, svo sem textaskilaboð,
geta fengið tiltekið magn af minni úthlutað í viðbót við minni sem er samnýtt
með öðrum aðgerðum.

Aukahlutir, rafhlöður og hleðslutæki

Athuga ber tegundarnúmer hleðslutækja áður en þau eru notuð með þessu tæki.
Þetta tæki er ætlað til notkunar þegar það er hlaðið orku frá AC-3 hleðslutækinu.
Þetta tæki notar BL-5C rafhlöður.

Viðvörun: Aðeins skal nota rafhlöður, hleðslutæki og aukahluti sem
Nokia hefur samþykkt til nota með þessari tilteknu tegund. Ef notaðar
eru aðrar gerðir gæti öll ábyrgð og samþykki fallið niður og slíkri
notkun getur fylgt hætta.

Seljandi símans veitir upplýsingar um fáanlega aukahluti sem samþykktir eru til
notkunar.

Nokkur holl ráð varðandi fylgibúnað og aukahluti.

Alla aukahluti og fylgibúnað skal geyma þar sem lítil börn ná ekki til.

Þegar aukahlutur eða fylgibúnaður er tekinn úr sambandi skal taka í klóna,
ekki leiðsluna.

Athuga skal reglulega hvort aukahlutir fyrir bíla séu vel festir og vinni rétt.

Uppsetningu flókinna aukahluta í bíla skal fela fagmönnum.

background image

A l m e n n a r u p p l ý s i n g a r

9