■ Hleðsla rafhlöðunnar
1. Stingdu hleðslutækinu í
samband við
rafmagnsinnstungu.
2. Stingdu tengi hleðslutækisins í
samband neðan á símanum. Ef
rafhlaðan er alveg tæmd geta
liðið nokkrar mínútur þar til
hleðsluvísirinn birtist á skjánum
eða þar til hægt er að hringja.
3. Taktu hleðslutækið úr sambandi við símann þegar rafhlaðan er
fullhlaðin.
Hægt er að nota símann þegar hleðslutækið er í sambandi.
Hleðslutíminn veltur á því hvaða hleðslutæki og rafhlaða er notuð. Það
tekur t.d. um 2 klukkustundir og 20 mínútur að hlaða BL-5C rafhlöðu
með AC-3 hleðslutæki þegar síminn er í biðstöðu.