
■ Vekjaraklukka
Vekjaraklukkan notar tímasniðið sem valið er fyrir klukkuna.
Vekjaraklukkan virkar þó að slökkt sé á símanum ef það er nægur
straumur á rafhlöðunni.
Vekjaraklukkan er stillt með því að velja
Valmynd
>
Skipuleggjari
>
Vekjarakl.
>
Stilla vekjara
og slá inn tímann. Ef breyta á vekjaratímanum
þegar vekjarinn er stilltur skaltu velja
Virk
. Ef stilla á símann þannig að
hann láti þig vita á völdum dögum vikunnar, skaltu velja
Endurtaka
vekjaratón
.
Ef stilla á vekjaratón eða nota útvarpsstöð sem vekjaratón skaltu velja
Valmynd
>
Skipuleggjari
>
Vekjarakl.
>
Vekjaratónn
. Ef útvarpið er valið
sem vekjaratónn skal tengja höfuðtólið við símann. Síminn notar síðustu
rás sem hlustað var á sem vekjaratón og spilar hana í gegnum
hátalarann. Ef þú tekur höfuðtólið úr sambandi eða slekkur á símanum
kemur sjálfgefni vekjaratónninn í stað útvarpsins.
Ef stilla á lengd blunds skaltu velja
Lengd blunds
og tímalengdina.