
Stafræn undirskrift
Þú getur búið til stafræna undirskrift með símanum ef SIM-kortið
inniheldur öryggiseiningu. Stafræn undirskrift getur jafngilt því að
maður skrifi undir reikning, samning eða annað pappírsskjal.
Þegar nota á stafræna undirskrift er valinn tengill á síðu, t.d. titill bókar
sem á að kaupa og verð hennar. Textinn sem skrifa á undir, hugsanlega
upphæðin og dagsetning, birtist.
Athugaðu hvort texti haussins sé
Lesa
og að táknið fyrir stafræna
undirskrift
birtist.
Ef táknið fyrir stafræna undirskrift birtist ekki hefur öryggið brugðist og
þú ættir ekki að færa inn neinar persónulegar upplýsingar, eins og
PIN-undirskriftina þína.
Til að undirrita textann skaltu fyrst lesa hann allan og velja síðan
Undirrita
.
Hugsanlega kemst textinn ekki fyrir á einum skjá. Því þarf að gæta þess
að fletta í gegnum hann allan og lesa hann áður en hann er undirritaður.
Valið er notandavottorðið sem á að nota. Færðu inn PIN-undirskriftina
(sjá “Aðgangslyklar” á bls. 9), og veldu
Í lagi
. Þá hverfur táknið fyrir
stafræna undirskrift og þjónustan birtir ef til vill staðfestingu á
innkaupunum.

S I M - þ j ó n u s t a
97