Nokia 6085 - Vottorð

background image

Vottorð

Mikilvægt: Þó að notkun vottorða dragi verulega úr þeirri áhættu sem
fylgir fjartengingum og uppsetningu hugbúnaðar verður að nota þau
rétt svo að aukið öryggi fáist. Tilvist vottorðs er engin vörn ein og sér.
Vottorðastjórinn verður að vera með rétt, sannvottuð eða tryggileg
vottorð svo að aukið öryggi fáist. Vottorð eru bundin tilteknum tíma. Ef
textinn Útrunnið vottorð eða Ógilt vottorð birtist þó að vottorðið ætti
að vera gilt skal athuga hvort rétt dag- og tímasetning er á tækinu.

Áður en vottorðsstillingum er breytt þarf að ganga úr skugga um að
örugglega megi treysta eiganda þess og að það tilheyri í raun
eigandanum sem tilgreindur er.

Til eru þrenns konar vottorð: vottorð netþjóns, heimildarvottorð og
notandavottorð. Þú gætir fengið þessi vottorði hjá þjónustuveitunni.
Þjónustuveitan vistar heimildarvottorðin og notandavottorðin í
öryggiseiningunni.

Til að skoða lista yfir heimildar- eða notandavottorð sem hefur verið
hlaðið niður í símann skaltu velja

Valmynd

>

Stillingar

>

Öryggisstillingar

>

Heimildavottorð

eða

Notandavottorð

.

Öryggisvísirinn birtist meðan tenging er virk ef gagnaflutningur milli
símans og efnismiðlarans er dulritaður.

Öryggistáknið sýnir ekki að gagnasendingin milli gáttarinnar og efnisþjónsins
(eða staðarins þar sem umbeðin tilföng eru geymd) sé örugg. Þjónustuveitan
tryggir gagnasendinguna milli gáttarinnar og efnisþjónsins.

background image

V e f u r

96