Nokia 6085 - Hleðsla og afhleðsla

background image

Hleðsla og afhleðsla

Tækið gengur fyrir rafhlöðu sem hægt er að endurhlaða. Rafhlaða nær ekki
fullum afköstum fyrr en hún hefur verið hlaðin og afhlaðin tvisvar til þrisvar
sinnum. Hægt er að hlaða og afhlaða rafhlöðu nokkur hundruð sinnum en að því
kemur að hún gengur úr sér. Þegar tal- og biðtími er orðinn mun styttri en
eðlilegt er skal skipta um rafhlöðu. Aðeins skal nota rafhlöður sem samþykktar
eru af Nokia og aðeins skal endurhlaða rafhlöðu með hleðslutækjum sem Nokia
hefur samþykkt til notkunar með þessu tæki.

Ef verið er að nota vararafhlöðu í fyrsta skipti eða ef rafhlaðan hefur ekki verið
notuð í langan tíma kann að vera nauðsynlegt að tengja hleðslutækið og aftengja
það síðan og tengja aftur til að hefja hleðsluna.

Taka skal hleðslutækið úr sambandi við rafmagnsinnstungu og tækið þegar það
er ekki í notkun. Ekki má hafa fullhlaðna rafhlöðnu í sambandi við hleðslutæki þar
sem ofhleðsla getur stytt líftíma hennar. Fullhlaðin rafhlaða tapar hleðslunni
smátt og smátt ef hún er ekki í notkun.

Ef rafhlaðan er alveg tæmd geta liðið nokkrar mínútur þar til hleðsluvísirinn
birtist á skjánum eða þar til hægt er að hringja.

Aðeins skal nota rafhlöðuna til þess sem hún er ætluð. Aldrei skal nota skemmt
hleðslutæki eða rafhlöðu.

Gæta skal þess að valda ekki skammhlaupi í rafhlöðunni. Skammhlaup getur
orðið fyrir slysni þegar málmhlutur, svo sem mynt, bréfaklemma eða penni veldur
beinni tengingu milli + og - skautanna á rafhlöðunni. (Þau líta út eins og
málmrendur á rafhlöðunni.) Til dæmis getur þetta gerst þegar vararafhlaða er
höfð í vasa eða tösku. Skammhlaup milli skautanna getur valdið skemmdum á
rafhlöðunni eða hlutnum sem veldur tengingunni.

Ef rafhlaðan er skilin eftir í miklum hitum eða kuldum, til dæmis í lokuðum bíl að
sumar- eða vetrarlagi, dregur það úr afkastagetu hennar og endingu. Æskilegast
er að rafhlaðan sé alltaf höfð í hita á bilinu frá 15°C til 25°C (frá 59°F til 77°F).
Tæki með of heitri eða of kaldri rafhlöðu getur orðið óvirkt um tíma, þó svo að
rafhlaðan sé fullhlaðin. Einkum hefur mikið frost takmarkandi áhrif á rafhlöður.

Ekki má fleygja rafhlöðum í eld þar sem þær geta sprungið. Rafhlöður geta einnig
sprungið ef þær skemmast. Farga skal rafhlöðum í samræmi við staðbundin lög
og reglugerðir. Skila skal þeim í endurvinnslu þegar mögulegt er. Ekki skal fleygja
þeim með heimilisúrgangi.

background image

U p p l ý s i n g a r u m r a f h l ö ð u

102