Nokia 6085 - Viðbótaröryggisupplýsingar

background image

Viðbótaröryggisupplýsingar

Í tækinu og aukahlutum þess geta verið litlir hlutir. Þá skal geyma þar sem lítil
börn ná ekki til.

Vinnuumhverfi

Hafa ber í huga að farið sé að öllum sérstökum reglugerðum sem gilda á hverju
svæði og að slökkva alltaf á tækinu þar sem notkun þess er bönnuð, eða þar sem
hún kann að valda truflun eða hættu. Tækið notist aðeins í hefðbundinni stöðu.
Þetta tæki uppfyllir skilyrði um leyfileg mörk útvarpsbylgna (RF) við notkun
annaðhvort í hefðbundinni stöðu við eyrað eða þegar það er haft að minnsta
kosti 1,5, sm (5/8 tommur) frá líkamanum. Ef taska, beltisklemma eða hald er
notað þegar tækið er borið á líkamanum við notkun ætti slíkur búnaður ekki að
innihalda málm og halda ætti tækinu að minnsta kosti í þeirri fjarlægð frá
líkamanum sem nefnd var hér á undan. Til að hægt sé að senda gagnaskrár eða
skilaboð þarf þetta tæki góða tengingu við símkerfið. Í sumum tilvikum getur
sending gagna eða boða tafist þar til slík tenging er tiltæk. Tryggja skal að
ofangreindum fjarlægðarfyrirmælum sé fylgt þar til sendingu er lokið.

Hlutar tækisins eru segulmagnaðir. Málmefni gætu dregist að tækinu. Ekki má
geyma kreditkort eða aðra segulmagnaða hluti með geymsluminni nálægt
tækinu því upplýsingar sem þar eru geymdar gætu þurrkast út.

Lækningatæki

Notkun búnaðar sem sendir frá sér útvarpsbylgjur, þar með talin notkun
þráðlausra síma, kann að trufla virkni lækningatækja sem ekki eru nægilega vel
varin. Hafa skal samband við lækni eða framleiðanda lækningatækisins til þess að
komast að því hvort það sé nægilega vel varið fyrir utanaðkomandi
útvarpsbylgjum eða til að afla nánari upplýsinga. Slökkva skal á tækinu í
námunda við heilsugæslustöðvar ef auglýstar reglur þess efnis kveða á um að það
sé gert. Sjúkrastofnanir eða heilsugæslustöðvar kunna að nota búnað sem getur
verið næmur fyrir utanaðkomandi útvarpsbylgjum.

Gangráðar

Framleiðendur gangráða mæla með því að 15,3 sm (6 tommu) lágmarksbil sé
haft á milli þráðlauss síma og gangráðs til þess að komist sé hjá hugsanlegri
truflun í gangráðinum. Þessi tilmæli eru í samræmi við sjálfstæða rannsókn og
tilmæli frá Wireless Technology Research. Þeir sem nota gangráð ættu að gera
eftirfarandi:

background image

V i ð b ó t a r ö r y g g i s u p p l ý s i n g a r

106

halda alltaf tækinu í meira en 15,3 sm (6 tommu) fjarlægð frá gangráðinum;

ganga ekki með tækið í brjóstvasa;

hafa tækið við eyrað sem er fjær gangráðinum til að draga úr líkum á
truflunum.

Ef grunur leikur á að tækið trufli gangráðinn skal slökkva á því og færa það í
burtu.

Heyrnartæki

Tiltekin stafræn þráðlaus tæki geta truflað sum heyrnartæki. Ef truflun verður
skal leita til þjónustuaðila.

Ökutæki

Útvarpsbylgjur kunna að hafa áhrif á rafeindakerfi í vélknúnum ökutækjum, séu
þau ekki rétt upp sett eða ekki nægilega varin, svo sem rafeindastýrða
eldsneytisgjöf, rafeindastýrð hemlakerfi (með læsivörn), rafeindastýrð hraðakerfi
og loftpúðakerfi. Nánari upplýsingar má fá hjá framleiðanda bílsins eða
búnaðarins sem bætt hefur verið við eða fulltrúa hans.

Aðeins á að fela fagmönnum að gera við tækið eða setja tækið upp í ökutæki.
Gölluð uppsetning eða viðgerð kann að valda hættu og ógilda hvers kyns ábyrgð
sem kann að vera á tækinu. Ganga skal reglulega úr skugga um að allur þráðlaus
tækjabúnaður í ökutækinu sé rétt uppsettur og vinni rétt. Ekki má geyma eða
flytja eldfima vökva, lofttegundir eða sprengifim efni í sama rými og tækið, hluta
úr því eða aukahluti með því. Ef ökutæki er búið loftpúða skal hafa hugfast að
loftpúðar blásast út af miklum krafti. Ekki má setja hluti, þar með talinn
uppsettan eða færanlegan þráðlausan búnað, á svæðið yfir loftpúðanum eða á
útþenslusvið loftpúðans. Ef þráðlaus búnaður í bíl er illa settur upp og loftpúðinn
þenst út getur slíkt orsakað alvarleg meiðsl.

Notkun tækisins meðan á flugi stendur er bönnuð. Slökkva skal á tækinu áður en
gengið er um borð í flugvél. Notkun þráðlausra fjarskiptatækja í flugvél getur
skapað hættu við stjórn flugvélarinnar, rofið þráðlaust símasamband og verið
ólöglegt.

Sprengifimt umhverfi

Slökkva skal á tækinu á svæðum þar sem hætta er á sprengingum og fara að
öllum tilmælum sem sjást á skiltum og leiðbeiningum. Sprengifimt andrúmsloft
telst vera á svæðum þar sem yfirleitt er beðið um að drepið sé á vél bifreiðar.
Neistaflug á slíkum svæðum getur valdið sprengingu eða eldi og haft í för með
sér slys og jafnvel dauðsföll. Slökkva skal á símanum á eldsneytisstöðvum, svo
sem við eldsneytisdælur á bensínstöðvum. Virða skal takmarkanir á notkun

background image

V i ð b ó t a r ö r y g g i s u p p l ý s i n g a r

107

útvarpsbúnaðar í eldsneytisgeymslum, svæðum þar sem geymsla og dreifing
eldsneytis fer fram, efnaverksmiðjum eða þar sem verið er að sprengja. Svæði þar
sem sprengihætta er mikil eru oftast auðkennd en þó ekki alltaf. Þar á meðal eru
svæði undir þilfari á bátum; svæði þar sem sterk efni eru geymd eða búin til
flutnings; ökutæki sem nýta fljótandi svartolíugas (própan eða bútan) og svæði
þar sem í lofti eru efni eða agnir, til dæmis korn, ryk eða málmduft.

Neyðarhringingar

Mikilvægt: Þráðlausir símar, þar á meðal þetta tæki, nota
útvarpsmerki, þráðlaus kerfi, kapalkerfi og notendaforritaðar aðgerðir.
Því er ekki hægt að tryggja tengingar við hvaða skilyrði sem er. Því
skyldi aldrei treysta eingöngu á þráðlaust tæki ef um er að ræða
bráðnauðsynleg fjarskipti, t.d. í bráðatilvikum.

Neyðarsímtal:

1. Ef slökkt er á tækinu skal kveikja á því. Athuga skal hvort nægilegur

sendistyrkur sé fyrir hendi.

Í tilteknum símkerfum kann að vera farið fram á að gilt SIM-kort sé rétt sett í
tækið.

2. Ýttu eins oft á endatakkann til að hreinsa skjáinn og gera tækið reiðubúið

fyrir símtöl.

3. Opinbera neyðarnúmerið fyrir viðkomandi svæði er valið. Neyðarnúmer eru

breytileg eftir stöðum.

4. Styddu á hringitakkann.

Ef ákveðnar aðgerðir eru í notkun þarf ef til vill að gera þær óvirkar áður en
neyðarsímtal er mögulegt. Nánari upplýsingar má fá í þessari handbók eða hjá
þjónustuveitunni.

Í neyðarsímtali þarf að gefa upp allar nauðsynlegar upplýsingar eins nákvæmlega
og kostur er. Þráðlausa tækið getur verið eina samskiptatækið á slysstað. Ekki má
slíta símtali fyrr en að fengnu leyfi til þess.

Upplýsingar um vottun (SAR)

Þetta farsímatæki uppfyllir leiðbeiningar um áhrif af útvarpsbylgjum

Þráðlausa tækið er útvarpssendir og móttökutæki. Það er hannað með tilliti til
leyfilegra marka um áhrif af útvarpsbylgjum sem alþjóðlegar viðmiðunarreglur
mæla með. Þessar viðmiðunarreglur voru þróaðar af óháðu vísindastofnuninni
ICNIRP og innihalda öryggismörk sem ætlað er að tryggja öryggi allra, óháð aldri
og heilsufari.

background image

V i ð b ó t a r ö r y g g i s u p p l ý s i n g a r

108

Í viðmiðunarreglum um útvarpsbylgjur úr þráðlausum tækjum er notuð
mælieiningin SAR (Specific Absorption Rate). Efri mörk SAR, samkvæmt
viðmiðunarreglum ICNIRP, eru 2,0 vött/kílógramm (W/kg) að meðaltali á hver 10
grömm af líkamsvef. Mælingar á SAR eru gerðar í hefðbundnum stöðum þegar
tækið sendir af mesta leyfða styrk á öllum mældum tíðnisviðum. Raunverulegur
SAR-styrkur tækis í notkun getur verið lægri en hámarksgildið, þar sem tækið er
hannað til að nota aðeins þann styrk sem þarf til að ná sambandi við símkerfið.
Fjöldi þátta hafa áhrif á styrkinn, t.d. hversu langt notandinn er frá grunnstöð.
Samkvæmt viðmiðunarreglum ICNIRP er hæsta SAR-gildi fyrir notkun tækisins
við eyra 1,15 W/kg.

Notkun aukabúnaðar getur valdið því að SAR-gildið verði annað. SAR-gildi kunna
að vera breytileg milli landa sökum mismunandi upplýsingaskyldu, krafna og
tíðnisviðs. Viðbótarupplýsingar um SAR má finna í upplýsingum um vörur á
www.nokia.com

background image

A t r i ð a s k r á

109